7. jún. 2019

Tölfræði úr rafrænu kosningunum

Alls kusu 2028 eða um 15,4% íbúa Garðabæjar sem voru á kjörskrá, þ.e. íbúar sem verða 15 ára á árinu (fæddir 2004) og eldri. 

  • Betri Garðabær!
    Betri Garðabær!

Niðurstöður úr rafrænum kosningum Betri Garðabæjar voru kynntar í frétt hér á vefnum 4. júní sl. Kosningarnar stóðu yfir frá 23. maí til og með 3. júní 2019.  Alls voru 13 verkefni sem hlutu brautargengi í kosningunum og verða þau framkvæmd á þessu ári og næsta sumar. 

Alls kusu 2028 eða um 15,4% íbúa Garðabæjar sem voru á kjörskrá, þ.e. íbúar sem verða 15 ára á árinu (fæddir 2004) og eldri. Á kjörskrá voru 13 215.  Konur voru í meirihluta kjósenda eða um 55% af þeim sem kusu. Þegar reiknað er út hlutfall þátttakenda innan hvers aldursbils sem kaus er hnífjafnt hjá þeim sem voru 31-40 ára með 25,65% þátttöku og aldursbilið 41-50 var með 26,03% þátttöku en hjá þeim var hæsta hlutfall þátttakenda.  

Tölfræði - þátttaka í kosningunum skipt niður á aldurshópa og kyn   (Í tölunum er miðað við fjöldann 2031 sem auðkenndi sig inn á kosningavefinn en alls kusu 2028). 

Hér má sjá hvaða verkefni hlutu kosningu.