23. sep. 2022 Bókasafn Íbúasamráð Menning og listir Þjónusta

Þjónustukönnun Bókasafns Garðabæjar

Starfsfólk Bókasafns Garðabæjar leitar til bæjarbúa og biður þá um að svara stuttri rafrænni könnun um starfsemi safnsins. Markmiðið er að veita sem besta þjónustu, fjölbreyttasta úrval bóka og gagna, viðburða og klúbba sem völ er á.

Hægt er að svara könnuninni á vef bókasafnsins og facebooksíðu bókasafnsins.
Niðurstöður úr könnuninni á að aðstoða starfsfólk safnsins við að þróa og byggja upp Bókasafn Garðbæjar í takt við samfélagið og að endurspegla kröfur og væntinga gesta safnsins.

Krækja á könnun: https://forms.gle/WANvXJLUWfwzAUqP9

Ekki er hægt að rekja svörin.