Fréttir: 2015 (Síða 33)

Fyrirsagnalisti

Séð yfir Garðabæ

6. feb. 2015 : Þróunarsjóður grunnskóla – nýbreytni í skólastarfi

Skólar í Garðabæ geta nú í fyrsta sinn sótt um sérstakan styrk til skólaþróunar í Þróunarsjóð grunnskóla í Garðabæ. Skólanefnd grunnskóla hefur unnið reglur fyrir sjóðinn sem bæjarstjórn Garðabæjar samþykkti á fundi sínum 5. febrúar. Sjóðurinn hefur til umráða 25 milljónir á árinu 2015, en grunnskólar í bænum geta sótt um í sjóðinn til 1. mars og aftur í haust. Lesa meira
Séð yfir Garðabæ

6. feb. 2015 : Fjölmenningarlegt leikskólastarf á degi leikskólans

Föstudaginn 6. febrúar er dagur leikskólans haldinn hátíðlegur í leikskólum landsins. Dagur leikskólans er samstarfsverkefni Félags leikskólakennara, Félags stjórnenda leikskóla, mennta- og menningarmálaráðuneytis, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Heimilis og skóla. Tilgangurinn er að auka jákvæða umræðu um leikskólann, vekja umræðu um hlutverk leikskóla og starf leikskólakennara og kynna starfsemina út á við. Í ár hafa leikskólar Garðabæjar ákveðið að vekja sérstaka athygli á fjölmenningarlegu leikskólastarfi í tilefni af degi leikskólans. Lesa meira
Séð yfir Garðabæ

6. feb. 2015 : Safnanótt í kvöld og Sundlauganótt annað kvöld

Í kvöld, föstudagskvöldið 6. febrúar er hin árlega Safnanótt haldin. Söfnin í Garðabæ bjóða upp á fjölbreytta dagskrá og eru með opið hús frá kl. 19 til miðnættis, ókeypis aðgangur er í öll söfnin á Safnanótt. Ókeypis aðgangur verður í Álftaneslaug á Sundlauganótt laugardaginn 7. febrúar frá kl. 18 til miðnættis. Lesa meira
Séð yfir Garðabæ

30. jan. 2015 : Fjölbreytt dagskrá á Degi tónlistarskólans

Fjölbreytt dagskrá verður í Tónlistarskóla Garðabæjar á Degi tónlistarskólans 2015 sem haldinn verður laugardaginn 31. janúar nk. Þá gefst Garðbæingum færi á að heimsækja skólann og njóta tónlistar af ólíku tagi. Dagskráin fer fram á báðum starfsstöðvum skólans, í Kirkjulundi 11 og í Breiðamýri á Álftanesi. Sinfóníuhljómsveit tónlistarskólanna, sem er samstarfsverkefni fimm tónlistarskóla á höfuðborgarsvæðinu, heldur tónleika í Langholtskirkju kl. 16.00 laugardaginn 31. janúar. Lesa meira
Séð yfir Garðabæ

30. jan. 2015 : Safnanótt og Sundlauganótt framundan

Söfn í Garðabæ taka þátt í Safnanótt sem verður haldin föstudagskvöldið 6. febrúar nk. kl. 19-24. Safnanótt er hluti af Vetrarhátíð í Reykjavík og söfn á öllu höfuðborgarsvæðinu taka þátt í dagskránni. Kvöldið eftir laugardaginn 7. febrúar verður haldin Sundlauganótt sem einnig er hluti af Vetrarhátíð og að þessu sinni tekur Álftaneslaug í Garðabæ þátt í þeirri dagskrá annað árið í röð. Lesa meira

29. jan. 2015 : Þorrinn blótaður á Ísafold

Fjölmenni var á þorrablóti hjúkrunarheimilisins Ísafoldar sem haldið var á bóndadaginn, föstudaginn 23. janúar sl. Mikil ánægja var meðal gesta sem kunnu vel að meta þorramatinn og rifjuðust upp margar góðar minningar frá liðinni tíð. Lesa meira

23. jan. 2015 : Ánægja með þjónustu Garðabæjar

Garðabær fær hæstu einkunn allra sveitarfélaga í svörum við fjórum spurningum af tólf þar sem spurt er hversu ánægð(ur) eða óánægð(ur) viðkomandi er með ýmsa málaflokka og þjónustu í nýrri árlegri þjónustukönnun Capacent. Einkunn Garðabæjar er í öllum tilfellum hærri en heildarmeðaltal sveitarfélaga. Könnunin var gerð haustið 2014 og þar er viðhorf íbúa til þjónustu stærstu sveitarfélaga landsins mælt. Lesa meira

22. jan. 2015 : Síðasta sýningarhelgi PRÝÐI í Hönnunarsafninu

Næstkomandi helgi 24.-25. janúar er síðasta sýningarhelgi PRÝÐI afmælissýningar Félags íslenskra gullsmiða í Hönnunarsafni Íslands. Á sýningunni eru gripir eftir 40 gullsmiði sem voru gefnar frjálsar hendur að smíða fyrir sýninguna eða velja úr eigin safni. Lesa meira
Síða 33 af 35