8. jan. 2019 Framkvæmdir Hafnarfjarðarvegur

Endurbætur Hafnarfjarðarvegar frá Vífilsstaðavegi að Lyngási

Skipulagsnefnd Garðabæjar hefur vísað tillögu Vegagerðarinnar að bráðabirgða endurbótum Hafnarfjarðarvegar á milli Vífilsstaðavegar og Lyngáss ásamt gatnamótum til forkynningar. Miðvikudaginn 9. janúar kl. 17:15 verður haldinn íbúafundur í Flataskóla þar sem tillögurnar verða kynntar.

  • Bráðabirgðaendurbætur á Hafnarfjarðarvegi
    Bráðabirgðaendurbætur á Hafnarfjarðarvegi - tillaga

Skipulagsnefnd Garðabæjar hefur vísað tillögu Vegagerðarinnar að bráðabirgða endurbótum Hafnarfjarðarvegar á milli Vífilsstaðavegar og Lyngáss ásamt gatnamótum til forkynningar. Stefnt er að því að veita framkvæmdarleyfi að undangenginni grenndarkynningu sbr. 5. mgr. 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan kallar á breytingar á aðliggjandi deiliskipulagssvæðum sem og nýja tillögu að deiliskipulagi. Hefur þeim einnig verið vísað til forkynningar í samræmi við 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Öryggi aukið og umferðarflæði bætt

Markmið endurbótanna er að auka öryggi vegfarenda og að bæta umferðarflæði með því að bæta aðgengi hliðarvega inn á Hafnarfjarðarveg. Málið mun hljóta meðferð sem framkvæmdaleyfisumsókn án deiliskipulags en ekki er vikið frá því markmiði að Hafnarfjarðarvegur verði síðar lagður í lokaðan stokk og gatnamót verði mislæg eins og aðalskipulag Garðabæjar gerir ráð fyrir. Sjá líka frétt á vef Garðabæjar um ályktun bæjarstjórnar frá 18. október sl. um forgangsröðun til brýnna framkvæmda í samgönguáætlun.

Helstu breytingar við endurbæturnar

Samkvæmt tillögunum verður gert ráð fyrir hringtorgi við gatnamót Vífilsstaðavegar og Litlatúns/Flataskóla. Við Ásar og Grundir er gert ráð fyrir breytingum á stígum o.fl. næst Hafnarfjarðarvegi. Skipulagssvæði sem tilheyrir deiliskipulagi Hraunsholts eystra minnkar við gatnamót Lækjarfitjar og Hafnarfjarðarvegar. Einnig minnkar svæði sem tilheyrir deiliskipulagi Sveinatungureits sem nemur gatnamótum Vífilsstaðavegar og Hafnarfjarðarvegar. Við deiliskipulag Ásgarðs er gert ráð fyrir breyttri legu göngustígs við Hraunsholtslæk og á breytingum á fyrirkomulagi bílastæða. Við Hörgatún 2 er gert ráð fyrir skerðingu í norðvesturhorn lóðar vegna útfærslu á hringtorgi á gatnamótum Litlatúns og Vífilsstaðavegar.

Allar þessar tillögur eru útskýrðar nánar á deiliskipulagsuppdráttum í skipulagsauglýsingunni sem má nálgast hér á vef Garðabæjar. Jafnframt eru tillögurnar aðgengilegar í þjónustuveri Garðabæjar, Garðatorgi 7. Þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að senda inn ábendingar um tillögurnar á netfangið skipulag@gardabaer.is Frestur til að skila inn ábendingum rennur út 28. janúar 2019.

Íbúafundur í Flataskóla 9. janúar kl. 17:15 – Hafnarfjarðarvegur – deiliskipulag Lyngássvæðis

Miðvikudaginn 9. janúar nk. verður haldinn íbúafundur í Flataskóla þar sem tillögurnar í tengslum við endurbætur á Hafnarfjarðarveg eru kynntar og spurningum svarað. Fundurinn hefst kl. 17:15 og stendur til kl. 19:00.

Á fundinum verður jafnframt kynning á tillögu að deiliskipulagssvæði Lyngássvæðis, L1 og L2, sem nú er í forkynningu. Svæðið afmarkast af Lyngási, Ásabraut og Stórási. Tillagan byggir á áherslu rammaskipulags og stefnu aðalskipulags. Fyrst og fremst er gert ráð fyrir fjölbýlishúsabyggð með áherslu á íbúðir fyrir ungt fjölskyldufólk en einnig atvinnuhúsnæði við Lyngás. Sjá nánar í skipulagsauglýsingu hér á vef Garðabæjar.