Fréttir: október 2020 (Síða 2)
Fyrirsagnalisti
![Undirgöng undir Arnarneshæð](/media/gardabaejarmyndir/small/loftmyndir_umferd-1-medium-.jpg)
Ábendingavefur um varasama staði í gatnakerfi opinn til 18. október
Ábendingavefur þar sem íbúar geta sent inn ábendingar um varasama staði og hindranir í gatnakerfi, göngu- og hjólastígum Garðabæjar í tengslum við gerð nýrrar umferðaröryggisáætlunar Garðabæjar er opinn til og með sunnudagsins 18. október nk.
Lesa meira![Jazzstund í Sveinatungu](/media/fretta-myndir/small/jazzstund_gardabaer_sveinatunga_okt2020.jpg)
Jazzstund í Sveinatungu
Jazzstund í Sveinatungu var tekin upp mánudaginn 12. október í því skyni að létta fólki lundina nú þegar 3. bylgja Covid-19 gengur yfir og allt viðburðahald liggur niðri.
Lesa meira![Bæjarstjórn í beinni](/media/gardabaejarmyndir/small/_mg_7659_minnkud.jpg)
Mönnun í starfsemi sveitarfélaga höfuðborgarsvæðisins á neyðarstigi
Almannavarnarnefnd höfuðborgarsvæðisins hefur ákveðið að virkja ákvæði í lögum um almannavarnir til þess að tryggja að þjónusta sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu haldist órofin meðan á neyðarstigi stendur vegna COVID-19 .
Lesa meira![](/media/ithrottir/small/dz9a5642_vefur_sundleikfimi.jpg)
Íþróttastarf innandyra fellur niður næstu 2 vikur
Skóla- og íþróttasvið allra sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu hafa í samráði við almannavarnir höfuðborgarsvæðisins tekið þá ákvörðun að stöðva allt íþróttastarf og kennslu sem fram fer innandyra á þeirra vegum frá og með deginum í dag 8. október til 19. október.
Lesa meira![Hönnunarsafn Íslands](/media/byggingar-i-gardabae/small/honnunarsafnid.png)
Söfnum Garðabæjar lokað til 19. október
Söfn Garðabæjar, Hönnunarsafn Íslands og Bókasafn Garðabæjar á Garðatorgi og Álftanesútibú verða lokuð frá og með 8. október til og með 19. október.
Lesa meira![Forvarnavika Garðabæjar 7.-14. október 2020](/media/vidburdadagatal/small/forvarnavika_mynd_auglysing_2020.jpg)
,,Að standa með sjálfum sér" er þema forvarnaviku Garðabæjar
Hin árlega forvarnavika Garðabæjar verður haldin dagana 7.-14. október 2020. Þema vikunnar er: ,,AÐ STANDA MEÐ SJÁLFUM SÉR".
Lesa meira![covid.is](/media/almannavarnir/small/safe_image.png)
Hertar samkomutakmarkanir á höfuðborgarsvæðinu
Heilbrigðisráðherra hefur fallist á tillögur sóttvarnalæknis um hertar samkomutakmarkanir á höfuðborgarsvæðinu og taka þær gildi í dag miðvikudaginn 7. október.
Lesa meira![Ásgarðslaug](/media/byggingar-i-gardabae/small/asgardslaug_google_360gradur.jpg)
Lokað í sundlaugum frá og með 7. október
Vegna hertra aðgerða á höfuðborgarsvæðinu í tengslum við COVID-19 faraldurinn hefur framkvæmdaráð almannavarnanefndar höfuðborgarsvæðisins ákveðið að loka öllum sundlaugum á höfuðborgarsvæðinu á morgun miðvikudaginn 7. október. Lokunin á einnig við skólasund.
Lesa meira![Undirritun samstarfssamnings um barnvænt samfélag](/media/fretta-myndir/small/barnvaentsamfelag_undirritun_011020-1-.jpg)
Garðabær bætist í ört stækkandi hóp sveitarfélaga sem taka þátt í verkefninu Barnvæn sveitarfélög
Ásmundur Einar Daðason félags- og barnamálaráðherra, Birna Þórarinsdóttir, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi og Gunnar Einarsson, bæjarstjóri Garðabæjar undirrituðu í gær, 1. október, samstarfssamning um verkefnið Barnvæn sveitarfélög. Með undirskriftinni bætist Garðabær í sístækkandi hóp sveitarfélaga sem hefja nú vinnu við að innleiða Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna í stjórnsýslu sína með stuðningi félagsmálaráðuneytisins og UNICEF á Íslandi.
Lesa meira![Vinnusmiðja skólabarna á sýningunni 100%ULL í Hönnunarsafninu](/media/fretta-myndir/small/honnunarsafn_ullarsmidja_haust2020-medium-.jpg)
Glaðir skólakrakkar í menningardagskrá
Þessar vikurnar streyma skólahópar í stríðum staumum á menningarviðburði sem eru hluti af menningardagskrá sem hefur verið skipulögð fyrir leik- og grunnskólabörn í Garðabæ.
Lesa meira![Skógarkerfill](/media/gardyrkja/small/kerfill-002-.jpg)
Aðgerðir til að hefta útbreiðslu ágengra plöntutegunda
Garðyrkjudeild og umhverfishópar Garðabæjar hafa undanfarin ár unnið að skrásetningu og heftingu á útbreiðslu ágengra tegunda í bæjarlandinu. Plöntutegundirnar eru skógarkerfill, bjarnarkló, lúpína og njóli.
Lesa meira- Fyrri síða
- Næsta síða