Fréttir (Síða 231)

Fyrirsagnalisti

Séð yfir Garðabæ

15. maí 2015 : Leiðsagnir í Hönnunarsafninu á íslenska safnadeginum

Í tilefni af íslenska safnadeginum sunnudaginn 17. maí, verður boðið upp á leiðsagnir þar sem skyggnst verður bak við tjöldin í Hönnunarsafni Íslands við Garðatorg. Gestir fá tækifæri til að ganga um mismunandi vinnurými safnsins og heyra um það fjölbreytta starf sem þar á sér stað. Lesa meira
Séð yfir Garðabæ

15. maí 2015 : Samstarf Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs og lögreglunnar um átak gegn heimilisofbeldi

Gunnar Einarsson, bæjarstjóri Garðabæjar, Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri Kópavogs, Haraldur L. Haraldsson bæjarstjóri Hafnarfjarðar og Sigríður Björk Guðjónsdóttir lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu undirrituðu í dag samstarfsyfirlýsingu um átak gegn heimilisofbeldi. Í yfirlýsingunni felst að frá og með mánudeginum 18. maí taka velferðasvið sveitarfélaganna og lögreglan upp nýjar verklagsreglur sem tryggja eiga markvissari viðbrögð og úrræði gegn ofbeldi á heimilum. Lesa meira
Séð yfir Garðabæ

8. maí 2015 : Opið hús í leikskólum föstudaginn 8. maí

Leikskólar í Garðabæ bjóða bæjarbúum á opið hús föstudaginn 8. maí nk kl. 15.00 – 17.00. Þennan dag gefst fjölskyldum, og öllum þeim sem áhuga hafa, gott tækifæri til að kynna sér leikskólana og starf þeirra. Börnin hafa mjög gaman af því að bjóða vinum og vandamönnum í heimsókn í leikskólann sinn og sýna þeim stolt og ánægð það, sem þau hafa verið að gera yfir veturinn. Lesa meira
Séð yfir Garðabæ

8. maí 2015 : Nærumhverfið skiptir okkur máli - íbúafundur 12. maí

Nærumhverfið skiptir okkur máli er yfirskrift íbúafundar á vegum umhverfisnefndar Garðabæjar sem verður haldinn þriðjudaginn 12. maí nk.í safnaðarheimili Vídalínskirkju. Á fundinum verður m.a. rætt um vorhreinsun, gróður á lóðum, trjáklippingar, safnhaugagerð, hreinsun og viðhald gatna, slátt og hirðingu opinna svæða. Einnig verður rætt um verkefni sumarstarfsmanna, umferðarmál, nágrannavörslu og hlutverk götustjóra. Lesa meira

6. maí 2015 : Sögugöngur að vori

Góð þátttaka var í fuglaskoðunargöngu Bókasafns Garðabæjar og Fugla- og náttúruverndarfélags Álftaness laugardaginn 2. maí sl. Hópurinn hittist í bókasafninu á Álftanesi og gengið var í blíðskaparveðri að Kasthúsatjörn þar sem fylgst var með fuglalífinu dágóða stund og eftir það var gengið meðfram Álftanesgaðinum í áttina að Bessastaðatjörn. Næsta söguganga bókasafnsins verður farin laugardaginn 9. maí nk. en þá verður gengið um Garðaholt og Garðahverfi og bustabærinn Krókur heimsóttur Lesa meira

5. maí 2015 : Góður hugarflæðisfundur um menningarmál

Miðvikudaginn 29. apríl sl. stóð menningar- og safnanefnd Garðabæjar fyrir opnum fundi í Kirkjuhvoli, safnaðarheimili Vídalínskirkju, um menningarmál í Garðabæ. Fundurinn var vel sóttur. Hátt í 60 manns mættu og tóku þátt í umræðum um hvernig megi efla og bæta menningarlífið í Garðabæ. Lesa meira

1. maí 2015 : Bæjarlistamaður Garðabæjar býður heim á vinnustofu sína

Soffía Sæmundsdóttir myndlistarmaður var útnefnd bæjarlistamaður Garðabæjar árið 2014 og hún hefur starfað ötullega að myndlist sinni undanfarinn áratug og haldið ótal sýningar innanlands og utan. Hún býr í Garðabæ en hefur verið með vinnustofu sína að Fornubúðum 8 í Hafnarfirði undanfarin átta ár og opnar hana reglulega upp á gátt. Lesa meira

Síða 231 af 560