Fréttir: 2017 (Síða 2)
Fyrirsagnalisti

Jóla- og góðgerðardagurinn á Álftanesi
Það var líf og fjör á Álftanesi þegar Jóla- og góðgerðardagurinn var haldinn laugardaginn 2. desember sl. Þetta var í níunda sinn sem Foreldrafélag Álftanesskóla stóð að góðgerðardeginum í samvinnu við Álftanesskóla, Garðabæ og félagasamtök á Álftanesi.
Lesa meira

Jólastemning á Garðatorgi
Laugardaginn 2. desember sl. voru ljósin tendruð á jólatrénu á Garðatorgi. Jólatréð kemur frá vinabænum Asker í Noregi og þetta var í 48. sinn sem Garðbæingar fengu þessa vinagjöf frá Asker. Veðrið var eins og best er á kosið á þessum tíma árs og fjölmenni mætti á torgið.
Lesa meira

Nemendur Tónlistarskólans á ferð og flugi í desember
Nemendur í Tónlistarskóla Garðabæjar koma víða við í bænum og spila í desember. Einnig spila nemendur á hefðbundnum jólatónleikum í tónleikasal skólans í Kirkjulundi, Vídalínskirkju og í Bessastaðakirkju.
Lesa meira

Jólastemning á Garðatorgi
Laugardaginn 1. desember sl. voru ljósin tendruð á jólatrénu á Garðatorgi. Jólatréð kemur frá vinabænum Asker í Noregi og þetta var í 49. sinn sem Garðbæingar fengu þessa vinagjöf frá Asker.
Lesa meira
Opið hús í Króki fyrsta sunnudag í aðventu
Sunnudaginn 3. desember, fyrsta í aðventu, verður opið hús í Króki á Garðaholti frá kl. 13-17. Gamla jólatréð í Króki verður til sýnis og boðið er upp á ratleiki fyrir börnin. Einnig verður boðið upp á leiðsögn á staðnum.
Lesa meira

Jóla- og góðgerðardagurinn á Álftanesi 2. desember
Laugardaginn 2. desember heldur Foreldrafélag Álftanesskóla hinn árlega Jóla- og góðgerðadag í góðri samvinnu önnur félagasamtök og börn og foreldra á Álftanesi. Jóla- og góðgerðardagurinn fer fram innandyra í íþróttamiðstöðinni á Álftanesi frá kl. 12-16. Kl. 16:10 Síðdegis verða ljósin tendruð á jólatrénu á Álftanesi fyrir utan íþróttamiðstöðina.
Lesa meira

Ljósin tendruð á jólatrénu á Garðatorgi 2. desember
Laugardaginn 2. desember nk. verða ljósin tendruð á jólatrénu á Garðatorgi. Jólatréð er gjöf frá Asker, vinabæ Garðabæjar í Noregi, og þetta er í 48. sinn sem Garðbæingar fá þessa vinasendingu þaðan. Athöfnin á laugardag hefst kl. 16 á Garðatorgi við ráðhús Garðabæjar
Lesa meira

Vel heppnað PMTO foreldrafærninámskeið
Fimmtudaginn 9. nóvember sl. lauk 8 vikna PMTO foreldrafærnisnámskeiði á vegum Garðabæjar. PMTO námskeiðið var fyrir foreldra barna (4-12 ára) með væga hegðunarerfiðleika. Á námskeiðinu vour kenndar aðferðir við að draga úr hegðunarerfiðleikum barna
Lesa meira
Ungbarnaleikskólinn Hnoðraholt
Hnoðraholt við Vífilsstaðaveg er ungbarnaleikskóli í Garðabæ sem er rekinn af Hjallastefnunni. Í leikskólanum eru börn 9 mánaða og eldri. Leikskólinn opnaði haustið 2016 og fyrst um sinn voru tveir kjarnar í leikskólanum, einn drengja og einn stúlkna kjarni. En um síðustu áramót bættust við 3 nýjir kjarnar og nú eru um 60 börn í leikskólanum.
Lesa meira

Golfklúbburinn Oddur fær GEO-vottun
Golfklúbburinn Oddur í Garðabæ hefur hlotið hina alþjóðlegu GEO Certified® vottun. Vottunin er afrakstur rúmlega tveggja ára vinnu sem hefur tekið á flestum þáttum starfseminnar, en GEO Foundation er óháður vottunaraðili fyrir golfvallarsvæði og staðfestir vottunin að Golfklúbburinn Oddur starfar með umhverfi sínu á sjálfbæran hátt. Þeir þættir sem vottunin tekur sérstaklega til eru náttúran, auðlindanotkun og samfélagið sem við störfum í.
Lesa meira

Jólatré frá vinabænum Asker
Á hverju ári fær Garðabær jólatré frá vinabænum Asker í Noregi. Þessi vinargjöf á sér langa hefð en í ár er það í 48. sinn sem Garðabær fær jólatré þaðan. . Að þessu sinni var jólatréð fengið úr garði íbúa í Asker og um er að ræða veglegt tré eins og sjá má á meðfylgjandi myndum með fréttinni
Lesa meira

Flataskóli orðinn réttindaskóli UNICEF
Flataskóli ásamt Laugarnesskóla fengu í gær, á alþjóðlegum degi barna, viðurkenningar fyrir að vera fyrstu tveir skólarnir á Íslandi sem fá titilinn réttindaskóli UNICEF
Lesa meira
Síða 2 af 18