Fjölbreytt dagskrá var í boði á 17. júní hátíðarhöldunum í Garðabæ sl. laugardag. Boðið var upp á hátíðardagskrá á Álftanesi að morgni og eftir hádegi við Ásgarð. Um kvöldið voru tónleikar í Kirkjuhvoli.
Lesa meira
Ásta Kristín Valgarðsdóttir hefur verið ráðin í starf leikskólastjóra á leikskólanum Kirkjubóli frá 1. ágúst.
Lesa meira
Fjölbreytt og skemmtileg dagskrá er í boði á 17. júní hátíðarhöldunum í Garðabæ nk. laugardag frá morgni til kvölds.
Lesa meira
Bæjarstjórn Garðabæjar ákvað síðastliðið haust að efna til framkvæmdasamkeppni um deiliskipulag fyrir miðsvæði Álftaness í samstarfi við Arkitektafélag Íslands. Niðurstöður liggja nú fyrir og voru þær kynntar fimmtudaginn 15. júní 2017. Alls bárust 4 tillögur og voru 3 þeirra verðlaunaðar. Í fyrsta sæti var tillaga Andersen & Sigurdsson Arkitekter
Lesa meira
Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ í Garðabæ fer fram sunnudaginn 18. júní kl. 14:00 í Garðabæ. Nú er hægt að skrá sig rafrænt í hlaupið. Boðið er upp á þrjár vegalengdir; 2 km skemmtiskokk, 6 km náttúruhlaup sem er ný leið og 10 km vegalengd með og án tímatöku.
Lesa meira
Bæjarstjórn Garðabæjar hefur nú hafið undirbúning að samkeppni um rammaskipulag Vífilsstaðalands, um 350 ha svæðis austan Reykjanesbrautar. Dómnefnd samkeppninnar stendur að opnum íbúafundi í Flataskóla þriðjudaginn 13. júní kl. 17:15. ? Þar verða þær áskoranir sem Garðabær stendur frammi fyrir við mótun skipulags á svæðinu kynntar
Lesa meira
Í lok maí var fulltrúum Hofsstaðaskóla boðið á lokahóf Micro:bit forritunarleikanna Kóðinn 1.0 sem fram fóru í vetur fyrir nemendur í 6. og 7. bekk. Lokahófið var haldið í húsakynnum Ríkisútvarpsins og þar afhenti Kristján Þór Júlíusson mennta- og menningarmálaráðherra viðurkenningar með aðstoð Ævars vísindamanns.
Lesa meira
Kór leikskólans Hæðarbóls kom og söng á síðasta fundi vetrarins hjá leikskólastjórum Garðabæjar og skólaskrifstofu 1. júní sl. Á þessum síðasta fundi leikskólastjóra voru þær Helga Kristjánsdóttir leikskólastjóri á Sunnuhvoli og Marta Sigrún Sigurðardóttir leikskólastjóri á Kirkjubóli þökkuð góð störf á liðnum árum
Lesa meira
Hönnunarsafn Íslands og Bókasafn Garðabæjar taka þátt í sumargleði á Garðatorgi föstudaginn 9. júní kl. 16-19. Í Hönnunarsafninu verður ókeypis aðgangur fyrir gesti í tilefni dagsins og opið lengur eða til kl. 19. Þar verða hönnuðir að störfum í anddyri safnsins
Lesa meira
Þáttaskil verða í undirbúningi fyrirhugaðrar Borgarlínu, nýs hágæða samgöngukerfis sem fá mun sérrými í gatnakerfi höfuðborgarsvæðisins, þegar vinnslutillögur um breytingar á svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins til 2040 og aðalskipulagi sveitarfélaganna sex sem standa að Borgarlínu verða kynntar á sameiginlegum fundi sveitarfélaganna í Salnum í dag, miðvikudaginn 7. júní kl. 15.
Lesa meira
Stjörnuhlaupið var haldið með pompi og prakt laugardaginn 20. maí sl. í dásemdar veðurblíðu. Hlaupið er almenningshlaup fyrir konur og karla á öllum aldri og hægt var að velja um tvær vegalengdir 5 og 10 km.
Lesa meira