Fréttir: september 2019
Fyrirsagnalisti
![PMT foreldrafærni](/media/fretta-myndir/small/pmtoforeldrafaerni.jpg)
PMTO foreldrafærninámskeið haldið í haust
PMTO (Parent Management Training) Foreldrafærninámskeið verður haldið í Garðabæ á fimmtudögum kl 16:30 – 18.30 í alls átta skipti haustið 2022.
Lesa meira![Opnun búsetukjarna við Unnargrund](/media/fretta-myndir/small/unnargrund_opnun_250919-16-.jpg)
Nýr búsetukjarni við Unnargrund
Miðvikudaginn 25. september sl. var nýr búsetukjarni fyrir fatlað fólk í Garðabæ opnaður við Unnargrund. Um er að ræða búsetukjarna með sex einstaklingsíbúðum fyrir fatlað fólk.
Lesa meira![Séð yfir Garðabæ og Arnarnesvog](/media/gardabaejarmyndir/small/gardabaer_arnarnesvogur_vefstaerd.jpg)
Lokað fyrir kalda vatnið á Arnarnesi föstudaginn 27. september
Vegna vinnu við stofnæð þarf að loka fyrir kalda vatnið á öllu Arnarnesi föstudaginn 27. september frá kl. 10 um morguninn og fram eftir degi.
Lesa meira![Turn tekin úr kirkjuturni](/media/byggingar-i-gardabae/small/turn-tekin-ur-kirkjuturni-copy-1-.jpg)
Bæjarskrifstofur loka kl. 12 föstudaginn 27. september
Vegna haustferðar starfsmanna verður bæjarskrifstofum Garðabæjar og þjónustuveri lokað kl. 12 í dag föstudaginn 27. september.
Lesa meira![Hitaveitubrunnur við hringtorgið hjá Bæjargili](/media/gatnaframkvaemdir/small/hitaveita_baejargil_agust2019.jpg)
Aflagning hitaveitubrunns við Bæjargil
Í dag, fimmtudaginn 26. september, verður byrjað að grafa við Bæjargil þar sem á að afleggja hitaveitubrunn sem er staðsettur á hringtorgi norðan við Bæjargilið.
Lesa meira![Hjólaráðstefna 2019](/media/fretta-myndir/small/hjolaradstefna200919-14-.jpg)
Hjólað til framtíðar í Samgönguviku
Samgönguvika var haldin 16.-22. september sl. og tók Garðabær að sjálfsögðu þátt í henni líkt og fyrri ár. Fjölmargir áhugaverðir viðburðir voru í bænum þessa daga en það sem stóð hæst var hjólaráðstefnan Hjólum til framtíðar sem haldin var föstudaginn 20. september.
Lesa meira![Veitur](/media/ymis-logo/small/veitur_logo.png)
Heitavatnslaust á Álftanesi að hluta
Vegna tengingar á nýrri lögn verður heitavatnslaust í Breiðumýri, Asparholti og Birkiholti á Álftanesi mán. 23. september kl. 09:00-15:00. Álftaneslaug verður lokuð á meðan.
Lesa meira![Lýðheilsuganga 18. september 2019](/media/fretta-myndir/small/lydheilsuganga_180919_bessastadatjorn-6-.jpg)
Gengið umhverfis Bessastaðatjörn
Það var góð mæting í þriðju lýðheilsugönguna í september sem var farin miðvikudaginn 18. september sl. í rigningarveðri. Um 37 manns héldu í göngu um Álftanesið undir leiðsögn Einars Skúlasonar sem er í forsvari fyrir gönguhópinn Vesen og vergang og Wapp-gönguleiðsöguappið.
Lesa meira![Uppskeruhátíð skólagarða 2019](/media/fretta-myndir/small/uppskeruhatid-skolagardar1.jpg)
Uppskeruhátíð skólagarðanna
Uppskeruhátíð skólagarðanna í Silfurtúni var haldin laugardaginn 14. september sl. Boðið var upp á grillaðar pylsur til að fagna góðu starfi og viðurkenningarskjöl veitt fyrir þátttöku í skólagörðunum.
Lesa meira![Hjólum til framtíðar](/media/fretta-myndir/small/hjolum-til-framtidar-mynd.png)
Samgönguvika 16.-22. september
Garðabær tekur þátt líkt og fyrri ár í Samgönguviku sem verður haldin 16.-22. september nk. Fjölmargir áhugaverðir viðburðir verða haldnir á höfuðborgarsvæðinu þá daga, meðal annars í Garðabæ.
Lesa meira![Hjólabrautin í efri Lundum](/media/fretta-myndir/small/hjolabraut3.jpg)
Ný hjólabraut
Ný hjólabraut hefur nú verið sett upp í efri Lundum, norðan við leikskólann Lundaból. Brautin er hluti af fyrirhuguðum framkvæmdum á svæðinu en þar er einnig áætlað að gera leiksvæði og bæta aðstöðu.
Lesa meira![Sveinatunga - fjölnota fundarsalur bæjarins á Garðatorgi](/media/byggingar-i-gardabae/small/_a3a4547_minni.jpg)
Smáforrit fyrir byggingastjóra
Nú hefur verið sett upp smáforrit (app) ætlað byggingarstjórum til að gera eigin úttektir. Forritið einfaldar ferlið að senda úttektir sem hafa verið gerðar, inn í kerfi Garðabæjar og Mannvirkjastofnunar.
Lesa meira- Fyrri síða
- Næsta síða