Fréttir: 2019 (Síða 2)

Fyrirsagnalisti

Röskun á skólastarfi

9. des. 2019 : Foreldrar sæki börn í skólann fyrir kl. 15 þriðjudaginn 10. desember

Veðurstofa Íslands hefur gefið út appelsínugula viðvörun fyrir höfuðborgarsvæðið vegna veðurs á morgun þriðjudaginn 10. desember frá kl. 15.  Röskun á skólastarfi verður virkjuð á morgun þriðjudag og verða foreldar og forráðamenn beðnir um að sækja börn sín í skólann fyrir klukkan 15:00. Ekki er ráðlagt að börn gangi ein heim eftir klukkan 13:00.

Lesa meira
Bæjarstjórn í beinni

6. des. 2019 : Fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2020 samþykkt

Á fundi bæjarstjórnar Garðabæjar 5. desember sl. var fjárhagsáætlun fyrir árið 2020 samþykkt. Fjárhagsáætlun Garðabæjar sýnir sterka fjárhagsstöðu Garðabæjar þar sem skuldir eru hóflegar og langt undir viðmiðunarmörkum skv. sveitarstjórnarlögum. 

Lesa meira
Aðventuopnun í Króki

5. des. 2019 : Vel sótt aðventuopnun í Króki

Margir lögðu leið sína í Krók þetta árið þegar komið var að hinni árlegu aðventuopnun sunnudaginn 1. desember sl. 

Lesa meira
Ljósin tendruð á jólatrénu á Garðatorgi

5. des. 2019 : Fjölmennt í jóladagskránni á Garðatorgi

Það var fjölmennt á Garðatorgi laugardaginn 30. nóvember sl. þegar ljósin voru tendruð á jólatrénu sem er staðsett fyrir framan ráðhústurninn. 

Lesa meira
Jólatré sett upp á Garðatorgi

28. nóv. 2019 : Ljósin tendruð á jólatrénu á Garðatorgi 30. nóvember

Laugardaginn 30. nóvember nk. verða ljósin tendruð á jólatrénu á Garðatorgi.

Lesa meira

28. nóv. 2019 : Ný jafnréttisstefna Garðabæjar 2019-2023

Jafnréttisstefna Garðabæjar til næstu fjögurra ára, 2019-2023, var samþykkt á fundi bæjarstjórnar Garðabæjar fimmtudaginn 21. nóvember sl.

Lesa meira
Gunnar Einarsson bæjarstjóri, Íris Dögg formaður Hjálparsveit Skáta í Garðabæ og Björg Fenger formaður íþrótta- og tómstundaráðs í Garðabæ.

28. nóv. 2019 : 50 ára afmæli Hjálparsveitar skáta í Garðabæ

Á dögunum voru 50 ár liðin frá því að Hjálparsveit skáta Garðabæ var stofnuð. Í tilefni þess var haldið opið hús í Jötunheimum laugardaginn 16. nóvember þar sem gestum og gangandi var boðið til veislu.

Lesa meira
Vígsla leikvallar á Álftanesi

22. nóv. 2019 : Nýr leikvöllur á Álftanesi

Fimmtudaginn 21. nóvember var nýr leikvöllur á Álftanesi formlega vígður. Leikvöllurinn er staðsettur við Norðurtún og hefur hann verið endurnýjaður að öllu leyti.

Lesa meira
Jóhannes Þorleiksson, forstöðumaður rafveitu Veitna, Gestur Pétursson, framkvæmdastjóri Veitna, Gunnar Einarsson bæjarstjóri og Jóna Sæmundsdóttir, formaður umhverfisnefndar Garðabæjar.

19. nóv. 2019 : Innviðir fyrir umhverfisvænni samgöngur í Garðabæ

Veitur og Garðabær hafa gert með sér samkomulag um uppbyggingu innviða fyrir hleðslu rafbíla í bænum. Markmiðið er að koma upp hleðslubúnaði fyrir rafbíla þeim til afnota sem síður geta komið slíkum búnaði upp heima fyrir og starfsfólki Garðabæjar.

Lesa meira
Málþing um börn og samgöngur

19. nóv. 2019 : Vel heppnað málþing um börn og samgöngur

Málþing um börn og samgöngur var haldið mánudaginn 18. nóvember sl. í Sveinatungu á Garðatorgi. 

Lesa meira
Dikta - Tónlistarveisla í skammdeginu

19. nóv. 2019 : Dikta spilaði í tónlistarveislunni

Hin árlega Tónlistarveisla í skammdeginu var haldin fimmtudagskvöldið 14. nóvember sl. á Garðatorgi. 

Lesa meira
Stjórn SHS og slökkviliðsstjórar

15. nóv. 2019 : Fjórar nýjar slökkvibifreiðar SHS afhentar

 Í vikunni fór fram formleg afhending á fjórum nýjum slökkvibifreiðum þegar stjórn Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins tók við lyklunum og afhenti slökkviliðinu.

Lesa meira
Síða 2 af 20