Fréttir: janúar 2018

Fyrirsagnalisti

Bjóðum í samtal

31. jan. 2018 : Bein útsending af íbúafundi í Sjálandsskóla hefst kl. 17:30

Bein útsending af íbúafundinum í dag hefst kl. 17:30 á fésbókarsíðu Garðabæjar

Lesa meira
Séð yfir Garðabæ

31. jan. 2018 : Safnanótt og sundlaugafjör í Garðabæ föstudaginn 2. febrúar

Á Safnanótt, föstudaginn 2. febrúar, verður opið hús og fjölbreytt dagskrá frá kl. 18-23 í Hönnunarsafni Íslands, burstabænum Króki og Bókasafni Garðabæjar við Garðatorg. Auk þess verður opið hús á Bessastöðum frá kl. 17-21. Í Álftaneslaug verður sundlaugafjör skemmtidagskrá föstudaginn 2. febrúar og opið til kl. 22. Ókeypis aðgangur í öll söfnin og Álftaneslaugina í kvöld. Lesa meira
Karlmenn í leikskólum

29. jan. 2018 : Karlmenn í leikskólum

Þriðjudaginn 23. janúar sl. var haldinn fræðslufundur fyrir karlmenn sem starfa innan leikskóla í Garðabæ. Ragnar Róbertsson, leikskólakennari og deildarstjóri í leikskólanum Laugasól í Reykjavík, var gestur fundarins. Á fundinum lýsti hann vali sínu á framtíðarstarfi sem leikskólakennari og þá þætti sem eru mest gefandi í starfinu.

Lesa meira
Menntadagur

26. jan. 2018 : Niðurstöður úr viðhorfskönnun um jafnréttismál, starfsþróun og endurmenntun

Haustið 2017 var gerð viðhorfskönnun meðal starfsfólks Garðabæjar um jafnréttismál, starfsþróun og endurmenntun. Könnunin var unnin sem liður í jafnréttisáætlun Garðabæjar fyrir árin 2014-2018. Markmið jafnréttisáætlunar Garðabæjar er að koma á og viðhalda jafnrétti og jöfnum tækifærum kvenna og karla og jafna þannig stöðu kynjanna á öllum sviðum samfélagsins.

Lesa meira
Kynningarfundur um opnun laugar

26. jan. 2018 : Staða framkvæmda við Ásgarðslaug

Endurbætur á sundlauginni í Ásgarði og rýmum innandyra er ein stærsta framkvæmdin sem hefur verið í gangi hjá Garðabæ á liðnu ári. Miðvikudaginn 24. janúar sl. var boðið til opins kynningarfundar um stöðu framkvæmda við Ásgarðslaug. Hópur fastagesta við Ásgarðslaug óskaði eftir að fá kynningu á stöðu framkvæmdanna og þeim ásamt öllum sem áhuga höfðu var boðið að koma í heimsókn í laugina.

Lesa meira
Svefnvenjur

25. jan. 2018 : Fræðsla um svefnvenjur yngstu barnanna

Arna Skúladóttir sérfræðingur í barnahjúkrun hélt nýverið fyrirlestur í Garðabæ fyrir leikskólakennara og starfsfólk leikskóla í Kraganum (öll sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu utan Reykjavíkur) undir heitinu „Samspil líðan og svefns á streitu hjá börnum".

Lesa meira
Íbúafundur á Álftanesi

25. jan. 2018 : Bjóðum í samtal – tveir fundir framundan

Miðvikudaginn 24. janúar sl.var haldinn íbúafundur í hátíðarsal Álftaness í íþróttamiðstöðinni. Fundurinn var annar í röðinni af fjórum íbúafundum í Gaðrabæ undir yfirskriftinni Bjóðum í samtal. Ágætis mæting var á fundinn á Álftanesinu þar sem fundarmenn hlustuðu á örkynningar

Lesa meira
Íbúafundur Toyotasalur

19. jan. 2018 : Góð mæting á íbúafund

Góð mæting var á íbúafundinn sem var haldinn miðvikudaginn 17. janúar sl. í sal Toyota í Kauptúni. Íbúafundurinn var sá fyrsti í röð íbúafunda sem verða haldnir næstu miðvikudaga út janúar og fyrstu vikuna í febrúar. Á þennan fyrsta fund voru íbúar í Urriðaholti, Vífilsstöðum og Hnoðraholti sérstaklega velkomnir en hverfaskipting íbúafundanna er eingöngu leiðbeinandi og allir íbúar eru velkomnir á þann fund eða fundi sem hentar þeim best

Lesa meira
Flatahverfi

19. jan. 2018 : Öflug nágrannavarsla mikilvæg

Síðustu daga og vikur virðist hafa verið mikið um innbrot á höfuðborgarsvæðinu og þar á meðal í Garðabæ.

Lesa meira
Bjóðum í samtal

17. jan. 2018 : Bein útsending af íbúafundi í dag hefst kl. 17:30

Bein útsending af íbúafundi Garðabæjar sem verður haldinn í dag miðvikudaginn 17. janúar verður á fésbókarsíðu Garðabæjar og hefst þar kl. 17:30.

Lesa meira
Séð yfir Garðabæ

16. jan. 2018 : Mikil ánægja með þjónustu Garðabæjar

Garðabær lendir í 1. sæti þegar spurt er um ánægju íbúa með þjónustu leikskóla, þjónustu grunnskóla og hversu vel eða illa starfsfólk bæjarins hefur leyst úr erindum íbúa samkvæmt niðurstöðum úr árlegri þjónustukönnun Gallup sem var framkvæmd í lok árs 2017. Þjónustukönnunin er síma- og netkönnun þar sem viðhorf íbúa til þjónustu í 19 stærstu sveitarfélögum landsins er mælt. Lesa meira
Flatahverfi

15. jan. 2018 : Neysluvatn í Garðabæ í lagi

Að gefnu tilefni vegna fréttar 15. janúar um að jarðvegsgerlar hafa mælst í neysluvatni/kalda vatninu fyrir sum hverfi Reykjavíkurborgar er rétt að taka fram að það er í lagi með neysluvatnið/kalda vatnið í Garðabæ. Garðabær fær kalt vatn úr vatnsbólum í Vatnsendakrika þar sem ný mæling sýnir að þar eru ekki jarðvegsgerlar.

Lesa meira
Síða 1 af 2