Fréttir: maí 2022
Fyrirsagnalisti
![Listahátíð: Rauðglóandi götuleikhús](/media/fretta-myndir/small/lih_social_story_1200x1200-raudgloandi-2-.png)
Listahátíð í Garðabæ -rauðglóandi götuleikhús
Hávaxnar undraverur og glaðværir trommuleikarar skálma um götur og torg og slá tóninn fyrir Listahátíð í Reykjavík 2022. Götuleikhúsið mætir í Garðabæ laugardaginn 4. júní kl. 16. Atriðið hefst við Litlatún og endar við Garðatorg.
Lesa meira![Bæjarlistamaður Garðabæjar 2022 er Birgitta Haukdal söngkona og barnabókahöfundur. Tilkynnt var um valið við hátíðlega athöfn í Sveinatungu á Garðatorgi þann 25. maí.](/media/fretta-myndir/small/baejarlistamadur2.jpg)
Birgitta Haukdal bæjarlistamaður Garðabæjar 2022
Bæjarlistamaður Garðabæjar 2022 er Birgitta Haukdal söngkona og barnabókahöfundur. Tilkynnt var um valið við hátíðlega athöfn í Sveinatungu á Garðatorgi þann 25. maí. Við sama tilefni var Birgittu og félögum hennar í Írafári afhent tvöföld platínuplata fyrir metsöluplötu sína „Allt sem ég sé“ og tóku þau lagið að þessu tilefni.
Lesa meira![Menntastefna Garðabæjar](/media/fretta-myndir/small/menntastefna-mynd.png)
Ný menntastefna Garðabæjar
Menntastefna Garðabæjar 2022-2030 hefur nú litið dagsins ljós. Eldri stefna sveitarfélagsins var endurskoðuð og var það gert í víðtæku samráði við börn í leik-, grunn- og tónlistarskólum, starfsfólk, kjörna fulltrúa, forráðamenn og bæjarbúa.
Lesa meira![Séð yfir Garðabæ](/media/byggingar-i-gardabae/small/Turn-tekin-ur-kirkjuturni.jpg)
M-listi hefur kært framkvæmd kosninganna
M-listi Miðflokksins hefur kært framkvæmd sveitarstjórnarkosninganna í Garðabæ til úrskurðarnefndar kosningamála. Í kærunni er vísað til þess að kjörseðill hafi verið þannig gerður að ekki hafi gætt jafnræðis með framboðum.
Lesa meira![Ærslabelgur við Hofsstaðaskóla](/media/fretta-myndir/small/aerslabelgur_hofsstadaskoli_050619_vefur.jpg)
Ærslabelgir í Garðabæ
Ærslabelgir eru gríðarlega vinsælir um þessar mundir. Um er að ræða uppblásnar hoppudýnur sem koma í allskyns stærðum og gerðum. Hugmyndin og virknin er einföld; á ærslabelg eiga allir að geta notið sín og leikið sér við að hoppa og skoppa.
Lesa meira![Séð yfir Garðabæ](/media/byggingar-i-gardabae/small/Turn-tekin-ur-kirkjuturni.jpg)
Endurtalningu lokið - sama niðurstaða
Miðvikudaginn 18. maí 2022 fór fram endurtalning í Garðabæ á atkvæðum úr sveitarstjórnarkosningunum sem fram fóru sl. laugardag. Farið var yfir flokkun á öllum atkvæðum og hvert einasta atkvæði talið upp á nýtt. Atkvæðafjöldinn skiptist með nákvæmlega sama hætti milli flokka í endurtalningunni og í upphaflegri talningu.
Lesa meira![Stjörnuhlaupið 2021](/media/fretta-myndir/small/stjornuhlaup8.jpg)
Stjörnuhlaupið 2022
Stjörnuhlaupið fer fram síðdegis laugardaginn 21. maí og líkt og í fyrra verður hlaupið ræst kl. 16:00. Boðið verður upp á tvær hlaupaleiðir, annars vegar 10 km hring og hins vegar 4 km hring.
Lesa meira![Vígsla fræðsluskilta um fuglalíf við Urriðavatn](/media/fretta-myndir/small/20220517_urridavatn_fuglaskilti_vigsla-7-.jpg)
Ný fræðsluskilti um fuglalíf við Urriðavatn
Við Urriðavatn í Garðabæ er að finna fjölmörg ný fræðsluskilti um fuglalíf við vatnið. Uppsetning fræðsluskiltanna er samstarfsverkefni Toyota á Íslandi og Garðabæjar.
Lesa meira![Séð yfir Garðabæ](/media/byggingar-i-gardabae/small/Turn-tekin-ur-kirkjuturni.jpg)
Endurtalning atkvæða
Yfirkjörstjórn Garðabæjar hefur samþykkt að verða við beiðni um endurtalningu atkvæða vegna sveitarstjórnarkosninga. Endurtalning fer fram miðvikudaginn 18. maí nk.
Lesa meira![](/media/gardabaejarmyndir/small/img_4227.jpg)
Úrslit sveitarstjórnarkosninga í Garðabæ
Fjórir listar fengu fulltrúa kjörna í bæjarstjórn, D-listi Sjálfstæðisflokksins fékk 7 fulltrúa, G-listi Garðabæjarlistans fékk 2 fulltrúa, C-listi Viðreisnar fékk 1 fulltrúa og B-listi Framsóknarflokks 1 fulltrúa.
Lesa meira![](/media/gardabaejarmyndir/small/img_4227.jpg)
Kjörsókn í Garðabæ - nýjustu tölur
Kjörfundur vegna kosninga til bæjarstjórnar Garðabæjar hófst í morgun laugardaginn 14. maí 2022 kl. 09:00 og stendur til kl. 22:00 í kvöld. Hér á vef Garðabæjar verða settar inn tölur yfir daginn um kjörsókn.
Lesa meira![](/media/fretta-myndir/small/vifilsbud_vigsla_110522-1-.jpg)
Vífilsbúð – ný útilífsmiðstöð skáta vígð
Miðvikudaginn 11. maí sl. var ný útilífsmiðstöð skátafélagsins Vífils er nefnist Vífilsbúð vígð. Útilífsmiðstöðin Vífilsbúð er staðsett við Grunnuvötn í Heiðmörk. Með tilkomu hinnar nýju útilífsmiðstöðvar Vífilsbúðar skapast betri möguleikar á að efla áhuga barna og unglinga á starfsemi skátafélagsins enda verður húsnæðið notað til að starfrækja fjölbreytta uppeldisstarfsemi í anda skátahreyfingarinnar.
Lesa meira- Fyrri síða
- Næsta síða