Fréttir (Síða 159)
Fyrirsagnalisti
Fyrsti fundur vetrarins í bæjarstjórn Garðabæjar verður haldinn fimmtudaginn 17. ágúst
Bæjarstjórn Garðabæjar kemur saman eftir sumarfrí fimmtudaginn 17. ágúst og verður fundurinn haldinn í safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli.
Lesa meira
Nemendur í Garðabæ þurfa ekki að kaupa námsgögn í vetur
Bæjarráð Garðabæjar samþykkti nýverið að greiða fyrir þau námsgögn sem nemendur í grunnskólum bæjarins þurfa að nota í starfi skólanna.
Lesa meira
Meistaraflokkur kvenna hjá Stjörnunni spilar til úrslita í Borgunarbikarnum þann 8. september
Kvennalið Stjörnunnar, sem vann Val 1-0 í framlengdum leik sunnudaginn 13. ágúst, spilar til úrslita um Borgunarbikarinn á Laugardalsvelli 8. september næstkomandi.
Lesa meira
Nýr bekkur settur upp við ylströndina í Sjálandshverfi
Starfsfólk þjónustumiðstöðvar setti nýlega upp bekk við ylströndina í Sjálandshverfi. Þar er líka búið að vera borð og salernisaðstaða í sumar.
Lesa meira
Skemmtilegt sumar á leikskólanum Bæjarbóli
Leikskólabörn á Bæjarbóli hafa notið sumarsins við leik og útiveru. Einnig hefur verið unnið að breytingum og viðhaldi á leikskólanum í sumar.
Lesa meira
Framkvæmdir við Ásgarðslaug ganga vel
Framkvæmdir við sundlaugina í Ásgarði, útisvæði og nýja búningsklefa ganga vel
Lesa meira
Gönguleið um Búrfellsgjá
Í byrjun ágúst var fróðlegt viðtal við Ragnheiði Traustadóttur fornleifafræðing um Selgjá og Búrfellsgjá í þættinum Ísland í sumar sem er sýndur á Stöð 2. Selgjá er hrauntröð sem gengur til norðvesturs í framhaldi af Búrfellsgjá. Í Wapp gönguleiðsagnarappinu er hægt að nálgast fjölmargar gönguleiðir í Garðabæ án endurgjalds í boði Garðabæjar þar á meðal gönguleið um Búrfellsgjá.
Lesa meira
Garðyrkjudeild Garðabæjar vinnur að því að hefta útbreiðslu Bjarnarklóar
Garðyrkjudeildin hefur undanfarin ár unnið að því að skrásetja og fjarlægja Bjarnarkló sem finnst á opnum svæðum og öðrum stöðum í sveitarfélaginu.
Lesa meira
Áhugaverð lokasýning Skapandi sumarstarfa
Lokasýning Skapandi sumarstarfa hjá Garðabæ var haldin fimmtudaginn 27. júlí sl. á Garðatorgi. Þar mátti sjá fjölmörg og fjölbreytt verk á mörgum sviðum, s.s. tónlist, kvikmyndun, grafísk verk, ljósmyndun, myndlist, handverk og hreyfimyndagerð o.fl.
Lesa meira
Námsgögn fyrir nemendur í grunnskólum Garðabæjar
?Bæjarráð Garðabæjar samþykkti á fundi sínum í morgun, þriðjudaginn 1. ágúst, að greiða fyrir námsgögn að upphæð 5000 kr fyrir hvern nemanda í grunnskólum Garðabæjar skólaárið 2017-2018 eða um 12.500.000 kr miðað við um 2500 nemendur.
Lesa meira
Gaman í skólagörðunum
Starfssemi skólagarðanna í Silfurtúni hefur gengið vel í sumar og aðsóknin er með svipuðu móti og undanfarin ár. Skólagarðarnir eru ætlaðir börnum 6-13 ára og er leiðbeinandi á staðnum alla virka daga frá kl. 8:00-16:00 börnum til aðstoðar við ræktunina.
Lesa meira
Opið hús í Króki á Garðaholti á sunnudögum í sumar
Opið hús í Króki á Garðaholti á sunnudögum í sumar
Lesa meira
Síða 159 af 559