Fréttir (Síða 90)

Fyrirsagnalisti

Ný fimm ára deild við Sjálandsskóla

26. apr. 2021 : Umsóknir um frístundaheimili skólaárið 2021-2022

Vegna innleiðingar á nýju kerfi fyrir frístundaheimili grunnskóla Garðabæjar eru forráðamenn barna í 1.-4. bekk beðnir um að sækja um dvöl á frístundaheimili fyrir næsta skólaár að nýju í gegnum Þjónustugátt Garðabæjar.

Lesa meira
Ásgarðslaug

26. apr. 2021 : Ásgarðslaug lokuð-heitavatnslaust í hluta Garðabæjar

Ásgarðslaug í Garðabæ verður lokuð frá kl 08:30 þriðjudaginn 27. apríl. Vegna viðgerðar verður heitavatnslaust í hluta Garðabæjar þann sama dag frá kl. 09:00-16:00.

Lesa meira
ADHD spilaði á Jazzhátíð Garðabæjar.

26. apr. 2021 : Fjölmargir nutu Jazzhátíðar heima við

Jazzhátíð Garðabæjar fór fram um helgina en hátíðin fór fram með rafrænum hætti í ár. Alls hlýddu 4279 manns á ferna tónleika á Jazzhátíð Garðabæjar.

Lesa meira
Andrea Gylfa og Sálgæslan

23. apr. 2021 : Jazzhátíð Garðabæjar í fullum gangi

Fimmtánda Jazzhátíð Garðabæjar hófst með beinu streymi frá Tónlistarskóla Garðabæjar að kvöldi sumardagsins fyrsta en fram kom Sálgæslan með Sigurð Flosason, sem hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin í síðustu viku, í fararbroddi.

Lesa meira
Fánaborg með íslenska fánanum

21. apr. 2021 : Sumardagurinn fyrsti í Garðabæ

Ekki verður hefðbundin hátíðardagskrá á Sumardaginn fyrsta í Garðabæ vegna samkomutakmarkana. Þrátt fyrir að aðstæður séu með öðrum hætti í ár er ýmislegt sem fjölskyldur geta gert saman í Garðabæ til að fagna sumrinu.

Lesa meira
Göturnar sem verða sópaðar í fyrstu umferð í apríl.

21. apr. 2021 : Götusópun hafin

Götusópun á aðalgötum Garðabæjar er hafin og verða þær sópaðar fram í maí. Sópun hefst í íbúðagötum samhliða vorhreinsun lóða. 

Lesa meira
Hreinsunarátak 2020 íbúar í Prýðahverfi

20. apr. 2021 : Hreinsunarátak í apríl – vorhreinsun lóða í maí

Árlegt hreinsunarátak Garðabæjar verður að þessu sinni dagana 24. apríl – 8. maí nk. en þá eru nágrannar, íbúasamtök, félagasamtök, íþróttafélög og skólar hvattir til að taka þátt. 

Lesa meira
Frá Jazzhátíð Garðabæjar 2019.

16. apr. 2021 : Jazzhátíð Garðabæjar í fimmtánda sinn en í fyrsta sinn í beinu streymi

Á sumardaginn fyrsta, 22. apríl, hefst Jazzhátíð Garðabæjar en þetta er í fimmtánda sinn sem hátíðin er haldin.  Hátíðin fer fram 22.-24. apríl nk. með beinu streymi á fésbókarsíðu bæjarins frá Tónlistarskóla Garðabæjar að þessu sinni. Sálgæslan, Kvintett Jóels Pálssonar, hljómsveitin ADHD og fleiri framúrskarandi jazztónlistarmenn koma fram á hátíðinni.

Lesa meira
Kjóavellir

16. apr. 2021 : Hesthúsalóðir á Kjóavöllum lausar til úthlutunar

Garðabær auglýsir lausar til úthlutunar hesthúsalóðir á Kjóavöllum, við göturnar Sunnuvelli og Æsuvelli. Alls er um að ræða um 20 lóðir. Einstaklingar sem og lögaðilar geta sótt um hesthúsalóðirnar.

Lesa meira
Eldgos á Reykjanesi

14. apr. 2021 Almannavarnir Eldgos Umhverfismál : Eldgos á Reykjanesi - upplýsingar vegna mögulegrar gasmengunar

Einn fylgifiskur eldgoss er gasmengun sem getur verið hættuleg og haft heilsufarsleg áhrif, sér í lagi á þá sem eru viðkvæmir fyrir, með astma eða aðra undirliggjandi lungna- og/eða hjartasjúkdóma.

Lesa meira
Ásgarðslaug

14. apr. 2021 Almannavarnir Covid–19 Stjórnsýsla : Tilslakanir á samkomutakmörkunum frá 15. apríl

Almennar fjöldatakmarkanir fara úr 10 í 20 manns, hægt verður að hefja íþróttastarf, sund og heilsurækt með takmörkunum, sviðslistir einnig og skíðasvæðin geta opnað á ný. Í skólum breytast nálægðarmörk á öllum skólastigum úr 2 metrum í 1 og leik- og grunnskólabörnum verður heimilt að stunda skipulagt íþrótta-, æskulýðs- og tómstundastarf á ný. 

Lesa meira
I.Elín Baldursdóttir forstöðuþroskaþjálfi á skammtímavistuninni, Sigurður Örn Arngrímsson frá Kiwanisklúbbnum Eldey í Kópavogi, Kristján Jakov Lazarev frá Mosfellsbæ, Jökull Logi Björgvinsson frá Garð

13. apr. 2021 : Fengu sófa að gjöf

Að Móaflöt í Garðabæ er rekin skammtímavistun fyrir 32 börn sem eru á aldrinum sex til átján ára. Á dögunum komu meðlimir Kiwanisklúbbanna Setbergs í Garðabæ og Eldeyjar í Kópavogi færandi hendi með sófa að gjöf til heimilisfólks.

Lesa meira
Síða 90 af 559