Fréttir: október 2017

Fyrirsagnalisti

Þorgerður Anna Arnardóttir,skólastjóri Urriðaholtsskóla

27. okt. 2017 : Þorgerður Anna Arnardóttir ráðin í starf skólastjóra Urriðaholtsskóla

Þorgerður Anna Arnardóttir hefur verið ráðin í starf skólastjóra Urriðaholtsskóla. Urriðaholtsskóli er nýr samrekinn leik- og grunnskóli í Garðabæ fyrir nemendur á aldrinum 1-16 ára. Skólinn verður tekinn í notkun í áföngum. Leikskóladeild mun taka til starfa í ársbyrjun 2018.

Lesa meira
Séð yfir Garðabæ

27. okt. 2017 : Kosið í Álftanesskóla og Fjölbrautaskólanum í Garðabæ

Kosningar til Alþingis fara fram laugardaginn 28. október 2017. Kjörfundur hefst á kjördag, laugardaginn 28. október 2017, og stendur frá kl. 09:00 til kl. 22:00. Í Garðabæ er kosið í Álftanesskóla, við Breiðumýri, og Fjölbrautaskólanum í Garðabæ, við Skólabraut. Lesa meira
Séð yfir Garðabæ

26. okt. 2017 : Menntadagur leik- og grunnskóla Garðabæjar

?Föstudaginn 27. október nk. er starfsdagur í leik- og grunnskólum Garðabæjar og eftir hádegi þann dag verður boðið upp á sérstakan menntadag fyrir kennara og starfsfólk á báðum skólastigum. Alls verða flutt 24 erindi sem fjalla um verkefni sem hafa hlotið styrki úr þróunarsjóðum leik- og grunnskóla í Garðabæ undanfarin ár Lesa meira

26. okt. 2017 : Áhugaverður fundur um leikskólann og líðan barna

Opinn fundur um leikskólamál undir yfirskriftinni ,,Leikskólinn og líðan barna - næg hvíld - þar sem allir njóta sín" var haldinn miðvikudaginn 25. október sl. í leikskólanum Ökrum. Fundurinn var opinn öllum, foreldrum, starfsfólki og áhugafólki um málefni leikskóla.

Lesa meira
Séð yfir Garðabæ

20. okt. 2017 : Fræðslufundur um Benedikt Gröndal tókst vel

Félag áhugamanna um sögu Bessastaðaskóla, Lista- og menningarfélagið Dægradvöl og Fugla- og náttúruverndarfélag Álftaness stóðu að vel sóttum fundi um Benedikt Gröndal í Bessastaðakirkju 7. október sl. þar sem boðið var upp áhugaverða dagskrá með fyrirlestrum og tónlist. Lesa meira
Séð yfir Garðabæ

20. okt. 2017 : Upplýsingar um alþingiskosningar

Kosningar til Alþingis fara fram laugardaginn 28. október 2017. Utankjörfundaatkvæðagreiðsla fyrir íbúa í Garðabæ sem og á höfuðborgarsvæðinu stendur nú yfir í verslunarmiðstöðinni Smáralind. Upplýsingar um alþingiskosningarnar eru á kosningavef Innanríkisráðuneytisins, www.kosning.is Lesa meira
Séð yfir Garðabæ

17. okt. 2017 : Leikskólinn og líðan barna - opinn fundur leikskólanefndar Garðabæjar

Leikskólanefnd Garðabæjar heldur opinn fund þar sem flutt verða áhugaverð erindi um svefn og heilsu og um félagsmótun, staðalmyndir og jafnrétti. Fundurinn verður haldinn miðvikudaginn 25. október kl. 17-19 í leikskólanum Ökrum, Línakri 2. Lesa meira
Séð yfir Garðabæ

13. okt. 2017 : Suðræn stemnning á Þriðjudagsklassík

Það var sannkölluð suðræn og seiðandi stemning á tónleikum Hins íslenska gítartríós þriðjudaginn 3. október sl.í sal Tónlistarskóla Garðabæjar við Kirkjulund. Lesa meira
Stefnaí málefnum eldri borgara - bæklingur

13. okt. 2017 : Stefna í málefnum eldri borgara komin á prent

Jónshús, félagsmiðstöð eldri borgara, hélt upp á 10 ára afmæli sitt 5. október sl. Í afmælisveislunni var stefnu í málefnum eldri borgara dreift um húsið en stefnan kom nýverið út í prentuðum bæklingi.

Lesa meira
Hraðhleðslustöð í bílakjallaranum á Garðatorgi

11. okt. 2017 : Garðabær opnar hraðhleðslustöð fyrir rafbíla á Garðatorgi

Garðabær opnaði nýja hraðhleðslustöð fyrir rafbíla í bílakjallaranum á Garðatorgi í miðbæ Garðabæjar miðvikudaginn 11. október. Garðabær er fyrsta sveitarfélagið sem semur við aðila á einkamarkaði um uppsetningu hraðhleðslustöðvar. Hraðhleðslustöðin er 50 kW stöð og með þeim hraðari á landinu.

Lesa meira
Séð yfir Garðabæ

6. okt. 2017 : Foreldrar og forráðamenn fjölmenntu á upplýsingafund um snjalltæki, svefn og forvarnir

Í tilefni af forvarnaviku í grunn- og leikskólum Garðabæjar var haldinn fundur fyrir foreldra fimmtudagskvöldið 5. október. Rúmlega 250 manns mættu á fundinn og hlustuðu á fyrirlesara kvöldsins, þau Björn Hjálmarsson barna- og unglingageðlækni og Örnu Skúladóttur barnahjúkrunarfræðing. Lesa meira
Halfið upp á 10 ára afmæli Jónshúss í okróber 2017.

6. okt. 2017 : Félagsmiðstöðin Jónshús er 10 ára

Það eru 10 ár síðan Jónshús, félagsmiðstöð eldri borgara í Garðabæ, opnaði í húsakynnunum á jarðhæð á Strikinu 6 í Sjálandshverfi. Haldið var upp á afmælið á opnu húsi með glæsilegri afmælisdagskrá fimmtudaginn 5. október sl. Eldri borgarar sem og aðrir gestir fjölmenntu í afmælisveisluna þennan dag

Lesa meira
Síða 1 af 2