Fréttir: ágúst 2020

Fyrirsagnalisti

Skjámynd af fjarfundi um skipulag í Vífilsstaðalandi

28. ágú. 2020 : Kyningarfjarfundir um skipulagsmál á Norðurnesi og í Vífilsstaðalandi

Í vikunni voru haldnir tveir kynningarfundir um skipulagsmál í Garðabæ á Norðurnesi og í Vífilsstaðalandi. Fjarfundirnir voru vel sóttir og margir sem fylgdust með í beinni og tóku þátt með því að senda inn spurningar á meðan á fundunum stóð.

Lesa meira

26. ágú. 2020 : Tímabundin frestun á skipulögðu íþróttastarfi fyrir eldri borgara

Skipulagt íþróttastarf fyrir eldri borgara á vegum Garðabæjar sem átti að hefjast í haust verður frestað tímabundið skv. ákvörðun neyðarstjórnar Garðabæjar í ágúst 2020. Um er að ræða sundleikfimi og skipulagða hóptíma í leikfimi. 

Lesa meira

26. ágú. 2020 : Afrein frá Hafnarfjarðarvegi á Vífilsstaðaveg lokuð næstu 3 vikur

Vegna vinnu við breytingar á gatnamótum Hafnarfjarðarvegar og Vífilsstaðarvegar þarf að loka afrein inn á Vífilsstaðaveg. Áætlað er að lokunin standi í 3 vikur.

Lesa meira

24. ágú. 2020 : Ný leikskólabörn hefja skólagöngu í leikskólum Garðabæjar

Nú stendur yfir aðlögunartímabil í leikskólum Garðabæjar þar sem ný börn mæta í leikskólana til að kynnast starfinu. Vegna fjarlægðartakmarkana og sóttvarna er aðlögunartímabilinu dreift á lengri tíma en áður.

Lesa meira

20. ágú. 2020 : Samningur um uppbyggingu íbúðalóða á miðsvæði Álftaness undirritaður

Föstudaginn 14. ágúst var undirritaður samstarfssamningur á milli Garðabæjar, Húsbygg ehf og Íslandsbanka um uppbyggingu fjölbýlishúsa á miðsvæði Álftaness við Breiðumýri.

Lesa meira

20. ágú. 2020 : Fjarfundir í næstu viku vegna tillagna um breytingar á skipulagi á Norðurnesi og í Vífilsstaðalandi

Þriðjudaginn 25. ágúst kl. 17 verður kynningarfjarfundur um skipulag á Norðurnesi og fimmtudaginn 27. ágúst kl. 17 verður kynningarfjarfundur um skipulag í Vífilsstaðalandi. Vegna samkomutakmarkana fara báðir fundir fram í gegnum Facebook síðu Garðabæjar.

Lesa meira

19. ágú. 2020 : Upphaf skólastarfs veturinn 2020-2021

Skólasetning grunnskóla í Garðabæ verður mánudaginn 24. ágúst.  Í vetur verða um 2500 nemendur í 1.-10. bekk í grunnskólum Garðabæjar og 240 börn hefja nám í 1. bekk.

Lesa meira

18. ágú. 2020 : Vífilsstaðavegur lokaður við nýja hringtorgið fimmtudaginn 20. ágúst frá kl. 9-18

Fimmtudaginn 20. ágúst frá kl. 09 - 18 verður unnið við malbikun á nýja hringtorginu á Vífilsstaðavegi. Þennan tíma verður sá hluti götunnar lokaður fyrir allri umferð.

Lesa meira
Álftaneslaug

17. ágú. 2020 : Sundlaugin á Álftanesi lokuð þriðjudaginn 18. ágúst og til kl. 9 miðvikudaginn 19. ágúst

Vegna vinnu við nýjar tengingar hjá Veitum verður sundlaugin á Álftanesi lokuð þriðjudaginn 18 ágúst og stendur lokunin til kl 09:00 miðvikudaginn 19 ágúst.

Lesa meira

14. ágú. 2020 : Heitavatnslaust í Lundum, Holtsbúð, Hleinahverfi, Molduhrauni og Urriðaholti 18. og 19. ágúst

Vegna tengingar nýrrar stofnlagnar verður heitavatnslaust á hluta höfuðborgarsvæðisins, þar á meðal í nokkrum hverfum í Garðabæ frá kl. 2 aðfaranótt 18. ágúst til klukkan 9 að morgni 19. ágúst

Lesa meira

14. ágú. 2020 : Nýtt leiksvæði við Heiðarlund/ Hofsstaðabraut

Í sumar var lokið við endurnýjun á leiksvæðinu við Heiðarlund/Hofsstaðabraut. Ný og skemmtileg leiktæki voru sett upp, körfuboltavöllur endurnýjaður og nýtt undirlag sett á allt svæðið

Lesa meira

13. ágú. 2020 Fjölnota íþróttahús Framkvæmdir : Framkvæmdir við fjölnota íþróttahús hafnar að nýju

Framkvæmdir eru á hafnar á ný við fjölnota íþróttahúsið í Vetrarmýri eftir tímabundna stöðvun.Vegfarendur eru beðnir um að fara varlega framhjá framkvæmdasvæðinu.

Lesa meira
Síða 1 af 2