Fréttir: mars 2021 (Síða 2)
Fyrirsagnalisti

Ratsjáin fyrir ferðaþjónustu á höfuðborgarsvæðinu
Ratsjáin er nýsköpunar- og þróunarverkefni ætlað stjórnendum í ferðaþjónustu og tengdum greinum. Umsóknarfrestur fyrir ferðaþjónustufyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu er til 29. mars nk.
Lesa meira
Sérstakur íþrótta- og tómstundastyrkur - umsóknarfrestur til 15. apríl
Meðal aðgerða stjórnvalda vegna Covid-19 faraldursins er styrkur sem hægt er að sækja um til sveitarfélaga vegna íþrótta- og tómstundastarfs barna. Styrkurinn er veittur vegna barna sem eru fædd á árunum 2005-2014 og búa á heimilum þar sem heildartekjur framfærenda, einstaklings, hjóna eða sambúðarfólks, voru að meðaltali lægri en 740.000 kr á mánuði á tímabilinu mars-júlí 2020.
Lesa meira
Breytingar á sóttvarnarráðstöfunum innanlands frá 18. mars
Breytingar á sóttvarnaráðstöfunum sem taka gildi 18. mars fela fyrst og fremst í sér auknar kröfur um skráningu gesta og smitgát í tengslum við viðburði.
Lesa meira
Góð þátttaka í hugmyndasöfnun Betri Garðabæjar
Hugmyndasöfnun í lýðræðisverkefninu Betri Garðabæ lauk 8. mars sl. Fjölmargar góðar hugmyndir voru sendar inn en alls söfnuðust hátt í 250 hugmyndir og yfir 1300 manns skráðu sig inn á hugmyndasöfnunarvefinn þar sem hægt var að líka við hugmyndir annarra og setja inn rök með og á móti.

Einstaklega góð fjárhagsstaða Garðabæjar á Covid-tímum
Ársreikningur Garðabæjar fyrir árið 2020, sem lagður var fram á fundi bæjarráðs Garðabæjar 16. mars 2021 lýsir sterkri fjárhagsstöðu sveitarfélagsins.
Lesa meira
Framkvæmdir við fjölnota íþróttahúsið ganga vel
Framkvæmdir við fjölnota íþróttahúsið sem nú er að rísa í Vetrarmýri hafa gengið vel í vetur. Bæjarfulltrúar og nefndarmenn í skipulagsnefnd, íþrótta- og tómstundaráði og dómnefnd alútboðs hússins ásamt framkvæmdaraðilum fengu á dögunum kynningarferð um húsið til að skoða stöðu framkvæmdanna.
Lesa meira
,,Skíni Stjarnan“ – bókagjöf til skólanna í Garðabæ
Stjarnan gefur öllum grunn- og framhaldsskólum í Garðabæ bókina ,,Skíni Stjarnan“ sem fjallar um sögu ungmennafélagsins Stjörnunnar í Garðabæ.
Lesa meira
Íslensku menntaverðlaunin
Íslensku menntaverðlaunin eru árleg viðurkenning fyrir framúrskarandi skólastarf eða aðrar umbætur í menntamálum. Verðlaunin njóta stofnstyrkja sem mennta- og menningarmálaráðuneytið og samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti hafa veitt.
Lesa meira
Fermingar til fyrirmyndar
Gætum að einstaklingsbundnum sóttvörnum á fermingardaginn. Leiðbeiningar frá almannavörnum um fermingar 2021.
Lesa meira
Hugmyndasöfnun Betri Garðabæjar lýkur 8. mars
Hugmyndasöfnun í lýðræðisverkefninu Betri Garðabæjar stendur yfir til og með mánudagins 8. mars nk.
Lesa meira
Hönnunarsamkeppni um nýjan leikskóla í Urriðaholti
Í lok janúar sl. auglýsti Garðabær hönnunarsamkeppni í samstarfi við Arkitektafélag Íslands um tillögu að 6 deilda leikskóla við Holtsveg í Urriðaholti. Áætluð heildarstærð leikskólans er um 1.400 m² og stefnt er að því að byggingin verði vistvottuð.
Lesa meira
Styrkjum úthlutað úr Sóley
Miðvikudaginn 3. mars var í fyrsta skipti úthlutað styrkjum úr Sóley, styrktarsjóði SSH (Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu) fyrir nýsköpunarverkefni á sviði ferðaþjónustu. Úthlutunin fór fram í fjölnota fundarrýmum Garðabæjar í Sveinatungu.
Lesa meira