Fréttir: 2022 (Síða 2)

Fyrirsagnalisti

Skjáskot af upptöku af íbúafundi um fjárhagsáætlun

9. des. 2022 : Kynning á fjárhagsáætlun

Þriðjudaginn 6. desember sl. var haldinn opinn fundur í Sveinatungu á Garðatorgi 7 um fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2023. Íbúar gátu komið á fundinn og fræðst um fjárhagsáætlunina þar sem Almar Guðmundsson bæjarstjóri fór yfir helstu atriði eins og rekstur og fjárhagsstöðu, þjónustu, fræðslumál, velferðarmál, framkvæmdir, umhverfi, menningu og mannlíf. Hægt er að horfa á fundinn á vef Garðabæjar.  

Lesa meira

9. des. 2022 : Nýta þarf hvatapeninga ársins fyrir áramót

Foreldrar/forráðamenn eru minntir á að nýta hvatapeninga ársins 2022 fyrir áramót en síðasti dagur til að skila inn kvittunum er 29.desember. Hvatapeningar ársins 2022 eru 50.000 krónur á barn.

Lesa meira
Flataskóli

8. des. 2022 : Mygla greindist í Flataskóla - starfsemi frístundaheimilis færist innan skólans

Starfsemi frístundaheimilis Flataskóla mun verða færð þar sem mygla hefur greinst þar í kjölfar sýnatöku. Einnig mun kennslustofu sem Tónlistarskóli Garðabæjar hefur haft til afnota verða lokað þar sem mygla greindist. Kennsla sem fór fram í stofunni færist einnig innan skólans.

Lesa meira
Hofsstaðaskóli

7. des. 2022 : Mygla greindist í Hofsstaðaskóla -kennsla raskast óverulega

Fimm kennslustofum í Hofsstaðaskóla í Garðabæ hefur verið lokað þar sem mygla greindist í þeim í kjölfar sýnatöku í síðasta mánuði. Kennsla raskast óverulega vegna þessa og stefna bæjaryfirvöld að því að leigja færanlegar skólastofur sem verður komið fyrir á skólalóðinni strax eftir jólafrí.

Lesa meira

6. des. 2022 : Efla þarf forvarnarstarf lögreglu og sýnilega löggæslu

Á stjórnarfundi Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í dag, 5. desember, var bókun samþykkt um mikilvægi þess að lögreglan verði efld og styrkt til þess að hún geti sinnt lögbundnu hlutverki sínu.

Lesa meira

6. des. 2022 Umhverfismál Þjónusta : Nýtt flokkunarkerfi á heimilisúrgangi í Garðabæ vorið 2023

Árið 2023 munu sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu taka upp nýtt og samræmt flokkunarkerfi á heimilisúrgangi. Með lögum um hringrásarhagkerfi, sem taka gildi um áramótin, verður skylt að flokka heimilisúrgang í fjóra flokka við heimili: pappír, plastumbúðir, lífrænan úrgang (matarleifar) og blandaðan úrgang.

Lesa meira

1. des. 2022 : Ábyrgur rekstur og sterk fjárhagsstaða

Fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2023 var samþykkt á bæjarstjórnarfundi þann 1. desember sl. Samhliða áætlun næsta árs var jafnframt lögð fram þriggja ára áætlun fyrir árin 2024, 2025 og 2026. 
Fjárhagslegt svigrúm er til að sækja fram en einnig til þess að viðhalda lágum og í sumum tilfellum lækka álögur á íbúa og fyrirtæki.Á árinu 2023 verður stóraukin áhersla á endurbætur á húsnæði og lóðum sveitarfélagsins og áframhaldandi uppbygging innviða. 

Lesa meira
Opnun á félagsmiðstöðinni Urra í Urriðaholtsskóla

1. des. 2022 : Félagsmiðstöðin Urri opnaði í Urriðaholtsskóla

Þriðjudaginn 29. nóvember sl.var fyrsta opnun hjá félagsmiðstöðinni Urra í Urriðaholtsskóla. 

Lesa meira
Ásta Sigrún Magnúsdóttir

30. nóv. 2022 : Nýr samskiptastjóri Garðabæjar

Ásta Sigrún Magnúsdóttir hefur verið ráðin í nýtt starf samskiptastjóra Garðabæjar sem var auglýst fyrr í haust.

Lesa meira

29. nóv. 2022 : Vel heppnuð aðventuhátíð á Garðatorgi

Óhætt er að segja að góð stemning hafi einkennt aðventuhátíð Garðabæjar sem fór fram á Garðatorgi þann 26. nóvember sl.

Lesa meira

25. nóv. 2022 : Ljósin tendruð á jólatrénu á Garðatorgi

Það var fallegt vetrarveður úti þegar leikskólabörn úr Garðabæ komu saman á Garðatorgi til að tendra ljósin á jólatrénu á Garðatorgi föstudaginn 25. nóvember. 

Lesa meira
Jóladagskrá á Garðatorgi

25. nóv. 2022 : Jólaball, skapandi smiðjur og lifandi tónlist á Garðatorgi

Laugardaginn 26. nóvember frá 13-16 verður upphafi aðventu fagnað í Garðabæ með hátíð fyrir alla fjölskylduna.

Lesa meira
Síða 2 af 21